Kvennaathvarfið á Kynjaþingi: Hænan og eggið - Samspil jafnréttis og kynbundins ofbeldis
HTML-код
- Опубликовано: 16 окт 2024
- Hænan og eggið - hvort kemur á undan? Samspil jafnréttis og kynbundins ofbeldis
Grundvallarkröfur kvennaverkfalls eru að kynbundu ofbeldi verði útrýmt og störf kvenna verði metin að verðleikum. Þrátt fyrir aukna fræðslu og aukin úrræði, þá er hættulegasti staður konunnar enn heimili hennar. Andlegt, líkamlegt, fjárhagslegt, stafrænt og kynferðislegt ofbeldi í nánum samböndum grasserar í slensku samfélagi sem aldrei fyrr.
En af hverju er verið flétta ofbeldi saman við kröfur kvennaverkfalls? Hvernig tengist kynbundið ofbeldi kynjajafnrétti og jöfnum kjörum á vinnumarkaði? Viðheldur kynbundið ofbeldi ójöfnuði í samfélaginu eða er kynjajafnrétti lykillinn í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi? Hvar liggur rót vandans og hvort kemur á undan?
Allt eru þetta risastórar spurningar sem þarft er að skoða til þess að komast að því hvernig við náum að koma á móts við grundvallarkröfur kvennaverkfalls.
Þátttakendur í pallborðsumræðum voru:
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra Jafnréttisskólans
Ingveldur Ragnarsdóttir, ráðgjafi og vaktstýra Kvennaathvarfsins
Valgerður Jónsdóttir, sérfræðingur í jafnréttismálum á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar.
Ísól Björk Karlsdóttir, ráðgjafi og fræðslustýra Kvennaathvarfsins
Málstofunni stýrir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Heimildarinnar