Sálin hans Jóns míns - Brostið hjarta

Поделиться
HTML-код
  • Опубликовано: 12 сен 2024
  • Texti:
    Það var svo afstætt að finna til
    því stundum virtist lífið mér í vil.
    Í mínum heimi var aðeins eitt,
    að hygla mér og mínum yfirleitt.
    Á hverju kvöldi á einhverjum bar
    hið ljúfa líf var hörkustundar var.
    Forboðnar ástir mig gátu seitt
    og þúsund andlit saman runnu í eitt.
    Ég hef skilið eftir brostið hjarta,
    ég hef skilið eftir opið sár
    og ég veit að ég á ekkert eftir
    nema sjálfan mig og beiskjutár.
    Ég hef vakið hjá þér falskar vonir,
    ég hef brugðist þér á allan hátt.
    Það er af sem áður en ég þráast,
    segðu að þú takir mig í sátt.
    Tíminn er floginn á annan stað
    í hita leiksins engan grunar það.
    Ég valdi glysið og gerði gott
    lék mér við kölska fram á rauða nótt.
    Endrum og sinnum bráði af mér
    í hugskotum það birtist mynd af þér.
    En ég var fastur í flæktum vef
    sem allir aðrir höfðu fyrirséð
    Ég hef skilið eftir brostið hjarta,
    ég hef skilið eftir opið sár
    og ég veit að ég á ekkert eftir
    nema sjálfan mig og beiskjutár.
    Ég hef vakið hjá þér falskar vonir,
    ég hef brugðist þér á allan hátt.
    Það er af sem áður en ég þráast,
    segðu að þú takir mig í sátt.
    Hvers virði er frægðin og heimsins prjál?
    Einmana sál, hún veslast upp og deyr
    Ég hef skilið eftir brostið hjarta,
    ég hef skilið eftir opið sár
    og ég veit að ég á ekkert eftir
    nema sjálfan mig og beiskjutár.
    Ég hef vakið hjá þér falskar vonir,
    ég hef brugðist þér á allan hátt.
    Það er af sem áður en ég þráast,
    segðu að þú takir mig í sátt.
    Enginn réttur áskilinn.

Комментарии •