Ég vil ekki hitta pabba

Поделиться
HTML-код
  • Опубликовано: 17 окт 2024
  • Þegar börn afneita foreldri sínu án eðlilegra ástæðna nota þau gjarnan veikar og léttvægar skýringar á því. Í tilefni af alþjóðlegum degi um foreldraútilokun hefur Foreldrajafnrétti tekið saman nokkrar raunverulegar skýringar barna á því af hverju þau velja að hafna öðru foreldri sínu.
    „Ég vil ekki hitta pabba. Hann setur avókadó á brauðið mitt.“
    Þegar börn eru dregin inn í neikvætt viðhorf annars foreldris gegn hinu í kjölfar skilnaða eiga þau oft ekki annarra kosta völ en að beygja sig undir þau áhrif. Í foreldraútilokun verða afleiðingarnar gjarnan til þess að þau nota veikar og fáránlegar ástæður til að hafna ástríku foreldri.
    Alþjóðlegur dagur vitundarvakningar um foreldraútilokun er 25. apríl ár hvert.
    Foreldraútilokun er þegar barn hafnar foreldri sem það átti áður gott samband við vegna neikvæðra áhrifa hins foreldrisins. Gera þarf greinarmun á því þegar barn hafnar foreldri vegna þeirra áhrifa eða þegar það verður fráhverft foreldri sínu vegna raunverulegs ofbeldis, vanrækslu eða misnotkunar. Í þeim tilfellum er ekki um foreldraútilokun að ræða og er meðferð í þeim tilfellum allt önnur.
    Foreldraútilokun á sér yfirleitt stað í kjölfar skilnaðar foreldra þar sem viðhorfum barnsins er stýrt og það fær svart/hvíta sýn á útilokaða foreldrið sem það sér að mestu í neikvæðu ljósi. Með foreldraútilokun er barninu - án raunverulegrar ástæðu - innrætt sú trú/skoðun að útilokaða foreldrið sé hættulegt og óverðugt. Þetta er ekki aðeins skaðlegt vegna þess tengslarofs og missis sem barnið verður fyrir, heldur einnig vegna þess skaða sem innrætingin hefur á sjálfsmynd barnsins.
    Miklar rannsóknir hafa átt sér stað á foreldrútilokun síðustu ár og yfir eitt þúsund ritrýndar fræðigreinar hafa verið birtar síðustu áratugi um þetta alvarlega ofbeldi. Sýnt hefur verið fram á hvernig foreldraútilokun fellur undir skilgreiningar um ofbeldi í nánum samböndum og einnig hefur verið bent á áberandi líkindi með foreldraútilokun og innrætingu í sértrúarsöfnuðum. Rannsóknir hafa leitt í ljós að essi tegund ofbeldis er ekki bundin við kyn. Afleiðingarnar eru alvarlegar og langvarandi fyrir þolendur, bæði börn og útilokaða foreldra, ömmur og afa.
    Í tilefni af þessum degi birtir Foreldrajafnrétti raunveruleg dæmi um þær ástæður sem börn gefa fyrir því að hafna foreldri sínu. Hvert dæmi fellur undir eitt eða fleiri af þeim atriðum sem horft er til þegar notuð eru greiningartól sem segja til um hvort barn er beitt foreldraútilokun eða ekki.
    Þekking á foreldraútilokun er því miður mjög lítil hér á landi enn sem komið er. Umræðan er oft fordómafull, jafnvel af hálfu fagaðila. Eina leiðin til að bæta úr þessu er að hvetja til þess að umræða um þetta mikilvæga málefni byggi á staðreyndum og vísindalegum grunni.
    Foreldrajafnrétti hvetur fagaðila og þá sem koma að foreldraútilokunarmálum til þess að uppfæra þekkingu sína og sækja sér sérfræðiþekkingu í foreldraútilokun. Röng greining og meðferð er börnum afar skaðleg, bæði andlega og líkamlega og getur lifað með þeim út lífið.
    Nánari upplýsingar og stuðningur á foreldrajafnretti.is.
    Önnur myndbönd í þessari seríu:
    Ég þarf ekki mömmu: • Ég þarf ekki mömmu
    Mamma var ekki einu sinni á spítalanum: • Mamma var ekki einu si...
    Ólíkindatólið: • Ólíkindatólið
    Illt umtal meiðir: • Illt umtal meiðir mig
    Mamma verður svo leið: • Mamma verður svo leið
    Hann setur avókadó á brauðið: • Ég vil ekki hitta pabba
    Pabbi elskar mig ekki lengur: • Pabbi elskar mig ekki ...

Комментарии •