Bubbi & Mugison - Þorpið.wmv

Поделиться
HTML-код
  • Опубликовано: 26 авг 2024
  • ATH Lagið "Ballaðan Um Bræðurna" & "Óttinn" & "Óskin" komið inn á RUclips.
    • Bubbi Morthens - Balla...
    • Bubbi Morthens - Óttin...
    • Bubbi Morthens - Óskin...
    og hér er 14 öskur • Bubbi Morthens - Fjórt...
    Nýtt 2012
    Bubbi & Mugison - Þorpið
    Þetta lag er komið á tónlist.is www.tonlist.is/...
    Þorpið er hér ennþá en frystihúsið fór í gær
    fór án þess að kveðja með sína vélar og rær
    bryggjan bátavana kvótinn minning ein
    fjörunni leyfar af bát fuglar og bein.
    Unga fólkið er fyrir sunnan að dreyma
    gamla fólkið situr eftir heima
    minningar út á fjörðinn streyma
    þorpið er að þurkast út
    Þar sem malbikið er grasið teygir sig upp úr
    fjallahringurinn er orðinn einskonar múr
    part úr vetri nær sólin aldrei að skína
    á fjörðinn og ljósið er vart sjáanleg lína.
    Unga fólkið er fyrir sunnan að vinna
    gamla fólkið varð eftir með nál og tvinna
    út á firði er enga drauma að finna
    þorpið er að þurkast út.
    Húsin kosta nokkrar dánar krónur
    kannski er hægt að rækt'úr þeim feitar jónur
    leikskólinn geymir bergmál hrópandi barna
    sem í borginni segja ég fæddist þarna
    sem ekkert ungt fólk finnst lengur
    bara gamalt lið og naktar fánastengur
    á landi er víst enginn happafengur
    þorpið er að þurkast út.
    Bankakerfið fyrir sunnan féll með látum
    en fimmtán árum fyrr hjá okkur útaf bátum
    sem voru keyptir og kvótinn seldur suður
    þar sem bankamenn átu gullhúðaðar kruður
    unga fólkið fór suður til að dreyma
    um gullið sem enginn átti heima
    og gammar yfir gömlu fólki sveima
    Þorpið er að þurkast út
    Fjöllin þau standa stara út á fjörðinn
    þorpið er að sökkva hægt oní svörðinn
    en ég ætla að reyna að rembast einhvað lengur
    því konan mín er ólétt það er sagt víst drengur
    Hér vill ég vera hér á ég heima
    en tækifærinn virðast burtu streyma
    það er ekkert rangt við það að dreyma
    að þorpið, það hjarni við
    Hér vill ég vera hér á ég heima
    en tækifærinn burtu bara streyma
    það er ekkert rangt við það að dreyma
    að þorpið mitt það hjarni við

Комментарии • 41

  • @xyxradioxyx
    @xyxradioxyx 12 лет назад

    Bubbi er kominn aftur með glæsilegt lag og texta. Þarna er Bubbi sem við munum hvað best eftir. Thumbs up fyrir þessum tveimur, tveir frabærir söngvarar sem vita svo sannarlega hvernig a að skemmta landanum.

  • @betongpanna
    @betongpanna 12 лет назад

    Ég er allavega þakklátur fyrir allt sem tónlistarmenn eins og Bubbi spila og syngja fyrir mig. Þetta er huggulegt og Mugison alveg að verða uppáhald á borð við Bubba. Stundum svo gott að vita af þeim heima á plötunni eftir erfiðan dag i vinnunni. Takk vinir og frændur:)

  • @NikkiSchumacherOfficial
    @NikkiSchumacherOfficial 3 года назад +2

    No clue what they are saying but my spirit is touched. Hope they aren't singing something bad 😂

  • @angoknudsen3205
    @angoknudsen3205 2 года назад +1

    Þetta er góð lage 👏👍

  • @JonBondi17
    @JonBondi17 12 лет назад +1

    Bubbi er kóngurinn.. !!

    • @jonbondi5683
      @jonbondi5683 5 лет назад

      Jón Bóndi nei blessaður nafni

  • @OlafurArons
    @OlafurArons 12 лет назад

    Mig grunar án þess að ég þori að staðfesta það, að þetta lag sé um Patreksfjörð.
    Það er allavega eini bærinn sem ég þekki sem er þekktur sem "Þorpið".

  • @Lehamzdr
    @Lehamzdr 12 лет назад

    Ég var meira hrifinn þegar Bubbi ~zamdi~ þetta lag fyrir 20 árum zíðan, þá hét það 'aldrei fór ég zuður', Beittari og betri texti alla vega þá, innlegg Arnar bætir náttla zögninn, og örugglega gott innlegg í zeldu ~zlef gjöldin~...

  • @PearlJamL0ver
    @PearlJamL0ver 12 лет назад

    Þetta er snilldar texti við yndislegt lag.
    Elska að hann syngur um þetta. Hafði aldrei hugsað útí þetta áður fyrr en núna.
    Það er ekkert rangt við það að dreyma að þorpið, það hjarni við.
    Þessi maður er snillingur.

  • @sigururingipalsson7886
    @sigururingipalsson7886 12 лет назад

    Gamli bubbi kominn aftur .. stórt like á það ..

  • @svefnpoki
    @svefnpoki 12 лет назад

    Mikið sem að hugur manns leitar heim við að hlusta á þetta...

  • @johannheiarsson4146
    @johannheiarsson4146 8 лет назад +2

    Var næstum búinn að gleyma ? hvað erum heppinn að eiga svoona snillinga :)

  • @stardecker1
    @stardecker1 5 лет назад

    Það er að reyna, en það getur bara x mikið... Það eru ekki til mikið af snillingum í þessum heimi, en þeir eru þó, nokkrir... Ef þú gefur allt sem þú átt, þá áttu allt.

  • @einaronr
    @einaronr 11 лет назад

    Þar dem ég bý köllum við Þéttbýlið "Þorpið,, og fór KEA með frystihúsið 2000 og fluttust þá margir á brott.

  • @helgisvan2803
    @helgisvan2803 10 лет назад

    Snilldar texti hjá honum.

  • @gummilangbesti
    @gummilangbesti 12 лет назад

    @OlafurArons þeir eru nú örugglega ekkert að syngja um einhvern sérstakan bæ, þetta lag á mjög vel við marga staði útá landi þar sem er ekkert (lítið) að hafa og allt ungafólkið flytur suður í leit að einhverju öðru einns og með minn heima bæ sem berst í bökkum

  • @jonbjarni4734
    @jonbjarni4734 2 года назад

    þetta lag á best við þorp eins og t.d bolungarvík eða önnur sjávarþorp

  • @MrEyddi
    @MrEyddi 12 лет назад

    Bubbi er Maðurinn !

  • @jonbondi5683
    @jonbondi5683 5 лет назад

    þetta lag minnir mig á heimaþorpið mitt hvolsvöll

  • @ElvarMasson
    @ElvarMasson 12 лет назад

    Ég hafði aldrei heyrt orðið ,,fánastengur" notað í neinu samhengi fyrr en ég fékk upplýsingar um þennan texta. Fram að þessu hefur orðið ,,stangir" þótt eðlilegt. Nema þetta sé einhver ,,Bubbíska" Hver veit?

  • @OlafurArons
    @OlafurArons 12 лет назад

    @OlafurArons Endurtek það þó að mér gæti skjátlast.

  • @JoiBoi79
    @JoiBoi79 12 лет назад

    Er sammála síðasta ræðumanni, flott lag

  • @einaronr
    @einaronr 11 лет назад

    Ósköp er ég sammála þér.

  • @StefanXII
    @StefanXII 12 лет назад

    Urbanization. Hefur víst komið fyrir á fleiri stöðum en Íslandi.

  • @FJARKARNIR
    @FJARKARNIR 6 лет назад

    ha hérna hér...

  • @sigururingipalsson7886
    @sigururingipalsson7886 12 лет назад

    6 manneskjur halda að Biber sé flottastur ..

  • @patrekurisak
    @patrekurisak 12 лет назад

    haters gonna hate... vertu þá ekkert að hlusta á þetta vælupokinn þinn !

  • @challehej
    @challehej 12 лет назад

    ætla aftur heim

  • @mariaoskjonsdottir6979
    @mariaoskjonsdottir6979 3 года назад

    Elska ykkur

  • @funkyslunky
    @funkyslunky 12 лет назад

    Það var gaman að hlusta á Bubba
    á meðan hann hafði smá lubba
    En núna þarf ég bara að gubba
    þegar ég hlusta á þetta rusl
    eitthvað sem ég fann á sannleikanum, er verulega samála þessu litla góða erindi sem á heima í þessu fáranlega illa skrifaða lagi.

  • @hebanita
    @hebanita 12 лет назад

    satt

  • @karohin88
    @karohin88 12 лет назад

    Vá hvað þetta er hrikalegt lag, fundu þeir rímnaorðabók fyrir leikskólabörn? Tveir frábærir listamenn þýða ekki alltaf gott lag