Legstaðaleit - Ari VE 235
HTML-код
- Опубликовано: 17 сен 2024
- Aðfaranótt 24. janúar 1930 réru flestir bátar frá Vestmannaeyjum. Voru sumir nýbyrjaðir að leggja línu er hann brast á með austan ofviðri. Snéru þá allir heimleiðis undireins. Voru þeir svo smám saman að tínast inn þangað til kl. að ganga 8 í þá um kvöldið, en þá vantaði enn þó enn einn bátinn, Ara VE 235. Voru á honum 5 menn. Ýmsar getgátur urðu um afdrif Ara. Sumir héldu, að hann hefði farizt í línudrættinum, en aðrir á heimleið, og er hvort tveggja ágizkun.
Skoða nánar: www.legstadale...
#sjóslys #vestmannaeyjar #ísland #1930s