RAMÓNA - Friðrik Ómar og Katrín Halldóra

Поделиться
HTML-код
  • Опубликовано: 18 фев 2020
  • Í tilefni af tónleikunum ÖLL BESTU LÖG VILHJÁLMS VILHJÁLMSSONAR 2020.
    RAMÓNA
    Lag: Mabel Wayine
    Texti: Þorsteinn Gíslason
    Söngur: Friðrik Ómar Hjörleifsson og Katrín Halldóra Sigurðardóttir
    Píanó: Jón Ólafsson
    Myndataka: Árni Beinteinn
    Framleiðandi: Rigg viðburðir
    RAMÓNA
    Bernskunnar vortími ljúfi leið
    alltof fljótt mér frá
    en ég fagra á
    minning sem lifir æ hrein og heit
    þó að syrti til
    þá ég syngja vil
    Ramóna, ég heyri til þín hvar ég fer
    Ramóna, þinn glaði söngur fylgi mér
    er klukkurnar hljóma
    og kvöldsins boða ró og frið
    Þá heyri ég óma, af horfna tímans ljúfa nið
    Ramóna, þú ein minn allan huga átt
    Ramóna, þér víg´ég hvern minn hjartaslátt
    og alltaf, allt bros mitt skaltu eiga ein
    Ramóna, Ramóna, þú ein
    Fjallanna vordrottning, það ert þú
    kát og frísk og fríð
    eins og fjól´í hlíð
    fegursta stúlkan sem til er nú
    blóm á hverjum stíg
    bros´í kringum þig
    Ramóna, ég heyri til þín hvar ég fer
    Ramóna, þinn glaði söngur fylgi mér
    er klukkurnar hljóma
    og kvöldsins boða ró og frið
    Þá heyri ég óma, af horfna tímans ljúfa nið
    Ramóna, þú ein minn allan huga átt
    Ramóna, þér víg´ég hvern minn hjartaslátt
    og alltaf, allt bros mitt skaltu eiga ein
    Ramóna, Ramóna, þú ein.

Комментарии •