Samantekt frá bikarsigri KA á Þór (10. feb. 2021)

Поделиться
HTML-код
  • Опубликовано: 2 окт 2024
  • KA sló nágranna sína í Þór útúr Coca-Cola bikarnum í handbolta þegar liðin mættust í Höllinni á Akureyri þann 10. febrúar 2021. Eftir jafnan og spennandi leik fór KA með 23-26 sigur af hólmi og tryggði sér þar með áframhaldandi veru í bikarnum á kostnað Þórsara.
    KA endurtók þar með leikinn frá síðasta bikarleik liðanna en það var árið 1998 þar sem KA vann 26-28 sigur fyrir framan troðfulla Höll. Vegna Covid-19 veirunnar voru hinsvegar engir áhorfendur leyfðir á leik liðanna að þessu sinni.
    Árni Bragi Eyjólfsson og Áki Egilsnes voru markahæstir í liði KA með 7 mörk hvor. Ólafur Gústafsson gerði 4 mörk, Andri Snær Stefánsson 3, Jón Heiðar Sigurðsson 2 og þeir Sigþór Gunnar Jónsson, Patrekur Stefánsson og Einar Birgir Stefánsson gerðu allir eitt mark. Í markinu varði Nicholas Satchwell 7 skot.
    Myndefni fengið úr beinni útsendingu RÚV frá leiknum en Ágúst Stefánsson klippti myndefnið saman.

Комментарии •