Poetrix ásamt Bubba - Vegurinn Til Glötunar

Поделиться
HTML-код
  • Опубликовано: 7 сен 2024
  • Texti:
    Ég er löngu hættur að hlakka
    til þess að ala upp eigin krakka
    til hvers að eignast börn
    leyfa þeim að fæðast til að kveljast
    að fá að koma í heim þar sem fólk lýgur uppá hvert annað
    til að láta blöðin seljast?
    það er ekki til matur handa öllum
    dópsalar selja smábörnum e-pillur í pez-köllum
    eyðum milljörðum í markaðsetningu á hæfileikalausum stjörnum
    ekki króna handa svöngum, illa förnum börnum
    sem deyja í hrönnum.
    við eigum heima í heimi þar sem stelpum
    litlum og grönnum
    er hópnauðgað af lögreglumönnum/
    fjölskyldan neydd til að horfa á
    engar áhyggjur, barnaníðingar fá hálft ár á bakvið lás og slá
    talið um gáfur og vit
    metið svo fólk eftir húðlit
    hafið aldrei opnað biblíuna en séð og heyrt er ykkar helgirit
    er svona erfitt að trúa að 40 prósent afríkubúa
    sé með h.i.v. smit
    þau fá frí lyf en þau má ekki taka á fastandi maga
    þau geta ekki innbyrt lyfin
    þau eru ekki búin að borða í marga daga
    við upphefjum líkamsmeiðingar, afleiðingar?
    við búum í samfélagi
    þar sem engin gengur óhultur um götur að næturlagi
    feiti krakkinn fer ekki í skólann án þess að allir hinir hlægji
    morðin sem við fremjum, ofbeldi eru dauðasyndir
    reynum við að stöðva það, nei semjum um það tónlist og kvikmyndir
    segjumst vera siðmenntaðir en erum siðblindir
    engin virðing fyrir framtíðinni, reynum bara að bjarga eigin skinni
    öll þessi illskuverk, ég er búinn að fá nóg af þeim
    fokk þennan heim!
    Þú notar alla þína fokking frasa
    þegar dauðinn kemur ertu alltaf einn
    mundu líkkistur eru ekki með vasa
    þú átt stefnumót og dauðinn er aldrei of seinn
    Af biturleika ég brenn, útí hálfvitatónlistamenn
    þið hafið dópað hvað með það?
    vegsamið vonlausa ávana
    getið ekki fundið ykkur betri málstað en það
    að lögleiða maríjúana
    því miður kemur þessi ósiður niður á okkur öllum
    hvað veldur dóp mörgum dauðsföllum?
    börn festast í fíkn eins og dýr festast í gildrum
    eftir stendur samfélagið okkar
    samsett úr sundurbrotnum fjölskyldum
    þið eruð fyrirmynd þessara krakka
    það er fyrsti sopinn sem drepur
    og þið fáið þau til að smakka
    ég vara ykkur við þessum ósið
    það er hægt að drekka og dópa
    kannski verður fjör
    en það er ekki hægt að skrópa
    í sína eigin jarðarför
    spurjiði bara, ég hef svör
    ég veit um hvað ég er að tala
    ég hef sjálfur nokkur ljótt ör
    en afhverju að hafa áhyggjur af mér
    ef manni langar að kála sér
    getur maður bara bókað bush og blair
    sem valda dauða, kvöl og verkjum
    því þeir hugsa í pundum og dollaramerkjum
    hafa aldrei heyrt þennan frasa
    það eru ekki til líkkistur með vasa
    sjúklingar svangir dauðann úr skelinni sleikja
    en þingmenn eftir hentugleika
    taka peninga úr ríkissjóði
    sem var aflað sem svita, tárum og blóði.
    sjórnmálamenn láta kvartanir eins og vind um eyru þjóta
    eins og þær væru fölsk nóta
    semja reglur sem þeir sjálfir brjóta
    menn hljóta að sjá hvað klikkar
    láta kassann passa barnið ykkar
    fengi ég að passa krakkann
    ef ég kenndi honum að skjóta fólk í hnakkann
    haldið að þið gerið engar skyssur
    skiljið ekkert í því afhverju krakkinn ykkar mætir skólann með byssu
    ég segi bara það sem þú veist
    við getum ekki breyst, ég neita að trúa því
    hugsaðu nú, er þetta heimurinn sem þú vilt að barnið þitt
    eigi einhverntíma eftir að fokking búa í
    skil ekki hvað er á seiði
    hvað er málið með öll þessi ómerktu leiði
    ég er að brjálast úr reiði
    við ættum öll að heita ósama
    því okkur er öllum fokking skítsama
    þó það sé verið að sprengja líkama
    stúlkna og drengja í loft oft á dag
    meðan við fáum mat
    hugsum við ekki um neitt annað rassgat
    en okkar eigið
    skítsama hvað þið segið
    um að ég geti ykkur ekki dæmt
    mannkynið sé ekki alræmt
    ég hef boðskap fram að færa
    en þið vísið þessu öllu á bug
    eins og þetta væri nauðgunarákæra
    en mér er slétt
    við erum ekki að breyta rétt
    þó við göngum á gangstétt götunar
    því við erum öll á veginum til fokking glötunar!
    Lag og texti: Poetrix
    Lagið er að finná plötunni "Fyrir Lengra Komna"

Комментарии • 32

  • @hrikalegur
    @hrikalegur 4 года назад +10

    Er ekki hægt að koma þessu á spotify

  • @Digital_Needs
    @Digital_Needs 13 лет назад +2

    Virkilega flott, vill sjá meira af svona frá bubba, hann er að massa þetta lag algjörlega! Þetta ætti að vera nýji bransinn hans bara, gera lag með fullt af rappörum

  • @birtalifanderssen116
    @birtalifanderssen116 6 лет назад +1

    Fullkomið lag , Elska tetta lag og texstinn er svo sannur og fullkomið lag ❤️🎶😀

  • @atlihrafn91
    @atlihrafn91 Год назад +1

    Loksins fann maður þetta lag en þetta lag þarf að komast á spotify með texsta 🙂

  • @siralanbstardmp7960
    @siralanbstardmp7960 Год назад

    vantar meira Poetrix í ísl tónlista líf

  • @HeimirJohnson
    @HeimirJohnson 11 лет назад +1

    alldrey haetta að rappa u r da best

  • @MrNalli1
    @MrNalli1 13 лет назад +1

    Þetta er svo osome lag að ég fæ næstum úr honum

  • @PopeHate
    @PopeHate 11 лет назад +3

    það er alveg til skammar hvað undirspilið er leiðinlegt og illa mixað miðað við hvað textinn er góður og vel rappaður

  • @Random6661
    @Random6661 13 лет назад +1

    Algjör fkn snilld :)

  • @fabregasfaninsah
    @fabregasfaninsah 13 лет назад

    @tarabjork því miður er þetta satt!!!

  • @friggindoc
    @friggindoc 12 лет назад

    það er fyrsti sopinn sem drepur
    og þið fáið þau til að smakka!!! POW!

  • @tarabjork
    @tarabjork 13 лет назад +1

    texti sem allir ættu að lesa.. því þetta er bara svo satt

  • @Toothpick91
    @Toothpick91 10 лет назад +3

    Ég er sammála öllu nema þegar hann talar um að marijuana veldur dauðsföllum. Það er einfaldlega rangt.

    • @Tannalfurinn
      @Tannalfurinn 9 лет назад +1

      Toothpick91 Er hann ekki að tala almennt um dóp ?

    • @Toothpick91
      @Toothpick91 9 лет назад +1

      Hann allavega segir að Marijuana komi niður á okkur öllum.

    • @birtalifanderssen116
      @birtalifanderssen116 6 лет назад

      Toothpick91 Ég elska marihuana og ja allvegsammala

  • @2PAC4LYPSE
    @2PAC4LYPSE 12 лет назад

    svona rappara á ísland að vera ánægt með ekki eh sellout stráka þessi er ekta

  • @kaverdinho
    @kaverdinho 13 лет назад

    besta lína sem hefur verið gerð
    það er hægt að drekka og dópa
    kannski verður fjör
    en það er ekki hægt að skrópa
    í sína eigin jarðarför
    enn samt svo satt

  • @JohnnyBabas
    @JohnnyBabas 11 лет назад +1

    "getið ekki fundið ykkur betri málstað en það
    að lögleiða maríjúana
    því miður kemur þessi ósiður niður á okkur öllum
    hvað veldur dóp mörgum dauðsföllum?"
    hann talar um marijuana eins og það sé dóp, hvað er í gangi hérna

  • @Pjakkur53
    @Pjakkur53 13 лет назад

    fyrsti sopin drepur ekki ég hef sjálfur allveg reykt marijuana þótt ég sé aðeins 15 ára gamall en ég hætti því og vinir mínir komnir úti extasy og svoleiðis það falla ekki allir við fyrsta sopa en betra að prufa ekki

  • @arkoverkill679
    @arkoverkill679 9 лет назад

    Hahahaha

  • @danielsvarsson6701
    @danielsvarsson6701 9 лет назад

    where's the flow ? he aint got no flow

    • @birtalifanderssen116
      @birtalifanderssen116 6 лет назад

      Daniel Sævarsson Make a fucking rap and send and IT to me and then we se who can really rap? Dont fuck whit this song BITCH.

  • @stebbijons800
    @stebbijons800 Год назад

    hvar finn ég kondakt hjá þessum?
    mail...fb ...eða annað